Námskeið fyrir ungt fólk
Kvíða- og sjálfsstyrkingarnámskeið (13 -16 ára)
Kvíða- og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglinga.
Námskeiðið kennir unglingum einfaldar og öflugar aðferðir til að takast á við kvíða og áreiti þannig að þeir geti verið besta útgáfan af sér, með sterka sjálfsmynd, lífsglaðir og hamingjusamir. Námskeiðið er byggt að hugrænni atferlismeðferð og aðferðum Hugarfrelsis en þær eru öndun, slökun og hugleiðsla. Foreldrar þátttakenda fá fræðslu áður en námskeiðið hefst til að geta stutt hvern og einn meðan á námskeiðinu stendur. Í foreldrafræðslunni verður farið yfir einkenni kvíða, birtingarmynd hans og hvað viðheldur honum hjá unglingum ásamt einföldum aðferðum til að draga úr kvíða og auka vellíðan.
Námskeiðið er ætlað nemendum í 8. – 10. bekk grunnskóla.
Á námskeiðinu er þátttakendum kennt að:
- Þekkja einkenni/ástæður kvíða og draga úr honum
- Þekkja betur huga sinn
- Efla jákvæða hugsun
- Þekkja styrkleika sína og styrkja sjálfsmyndina
- Setja sér markmið og elta drauma sína
- Bæta einbeitinguna og eiga betri samskipti
- Nota öndun, slökun og hugleiðslu
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Paolu Cardenas, sálfræðing og fjölskylduþerapista hjá Barnahúsi. Paola hefur m.a. starfað á barna- og unglingageðdeild Landsspítalans og sem yfirsálfræðingur barna- og unglingateymis hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Þátttakendur fylla út sjálfsmatskvarða í byrjun og lok námskeiðs. Sjálfsmatskvarðanum er ætlað að skoða ýmsa þætti sem tengjast geðheilbrigði barna og unglinga á aldrinum 7-18 ára.
Öflugt námskeið fyrir unglinga sem vilja verða besta útgáfan af sér.
Næstu námskeið
Kópavogur
29.jan-9.apríl 2019
Kl. 17:30 – 19:00 (þriðjud.)
Víkurhvarfi 1, 2. hæð
Kennarar: Unnur og Paola
Verð: 64.500 kr (10 % systkinaafsláttur)
Sjálfsstyrkingarnámskeiðið Vertu þú (13-16 ára)
Námskeiðið VERTU ÞÚ er sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglinga (13-16 ára). Þar eru kenndar aðferðir til þess að efla þá og styrkja. Aðferðirnar hjálpa þeim að takast á við áreiti, mótlæti, hindranir, samanburð, kvíða, samfélagsmiðlana ofl. þannig að þeir nái að verða besta útgáfan af sér.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar
- Hvernig virkja má hæfileika svo þeir geti orðið að styrkleikum
- Áhrif hugsana á líðan og hegðun
- Vináttufærni
- Jákvæða og neikvæða leiðtoga
- Mikilvægi þess að eiga sér drauma
- Að setja sér markmið
- Mikilvægi þess að vera í núvitund
- Öndun, slökun og hugleiðslu
Í hverjum tíma er fróðleikur og unnin verkefni sem tengjast honum. Að þeim loknum er leidd öndun, slökun og hugleiðsla sem hjálpa þeim að vera í núvitund. Hugleiðslan er í söguformi, svokallaðar hugleiðslusögur, en þær henta vel þeim sem ekki eru vanir að hugleiða.
Markmið námskeiðsins er að þeir læri að nota hentugar aðferðir til að öðlast styrk til að standa með sjálfum sér og leyfi sér að blómstra og njóta alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Næstu námskeið
Selfoss
31.jan-4.apríl 2019
Kl. 19:30 – 20:30 (fimmtud.)
Jógastofan, Austurvegi 21
Kennari: Helga
Egilsstaðir
31.jan-4.apríl 2019
Kl. 16:00 – 17:00 (fimmtud.)
Egilsstaðaskóli
Kennari: Anna María
Vestmanneyjar
31.jan-4.apríl 2019
Kl. 20:00 – 21:00 (fimmtud.)
Friðarból
Kennari: Katrín
Verð: 29.900 kr (10 % systkinaafsláttur)
Sjálfsstyrkingarnámskeiðið Vertu þú (16 ára og eldri)
Viltu vera besta útgáfan af þér? Viltu læra að standa með sjálfri/um þér?
Námskeiðið VERTU ÞÚ er sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir ungt fólk á framhalds- og háskólaskóla aldri (16-20 ára). Þar eru kenndar aðferðir til þess að efla þig og styrkja. Aðferðirnar hjálpa þér að takast á við áreiti, mótlæti, hindranir, samanburð, kvíða, samfélagsmiðlana ofl. þannig að þú náir að verða besta útgáfan af þér og blómstra í lífinu.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar
- Hvernig virkja má hæfileika svo þeir geti orðið að styrkleikum
- Áhrif hugsana á líðan og hegðun
- Jákvæða og neikvæða leiðtoga
- Mikilvægi þess að eiga sér drauma
- Að setja sér markmið
- Lífsgildin þín og hvað þú vilt að einkenni líf þitt
- Öndun, slökun og hugleiðslu
Í hverjum tíma er fróðleikur og unnin verkefni sem tengjast honum. Að þeim loknum er leidd öndun, slökun og hugleiðsla sem hjálpa þér að vera í núvitund. Hugleiðslan er í söguformi, svokallaðar hugleiðslusögur, en þær henta vel þeim sem ekki eru vanir að hugleiða.
Markmið námskeiðsins er að þú lærir að nota hentugar aðferðir til að öðlast styrk til að standa með sjálfri/um þér og leyfa þér að blómstra sem einstaklingur og njóta alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Næstu námskeið
Kópavogur
5.feb-26.mars 2019
Kl. 19:30 – 20:30 (þriðjud.)
Víkurhvarfi 1, 2. hæð
Kennari: Unnur
Verð: 22.500 (10% systkinaafsláttur)
Skráning
Við bjóðum upp á að nýta frístundarstyrk fyrir námskeið Hugarfrelsis og tökum þess vegna á móti öllum skráningum í gegnum kerfi Nóra. Skráningarhnappur færir þig inn á síðu kerfisins þar sem þú getur skráð þig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. SKRÁNING FYRIR VOR HEFST 15.NÓV.
Fleiri námskeið
„Námskeiðið var frábært. Það hjálpaði mér mikið. Ég lærði að anda djúpt og slaka betur á þegar ég verð kvíðin. Ég lærði líka að hugsa meira jákvætt.“
– Ása Katrín Jónsdóttir