Hugarfrelsi logo

Námskeið

Vörur

Fyrirlestrar

Innleiðingar

Aðferðir

Veldu (13–16 ára)

Helgarnámskeið fyrir unglinga í 8.-10. bekk
24.900 kr.

Um námskeiðið

Ungt fólk sem þekkir styrkleika sína og hefur trú á eigin getu á auðveldara með að blómstra í lífinu. Margir glíma hins vegar við óöryggi, neikvæða sjálfsmynd og finna því fyrir kvíða. Hraðinn, álagið og samanburður í samfélaginu dregur úr því og ýtir jafnvel undir fullkomnunaráráttu sem ekki er raunhæf. Á námskeiðinu Veldu eru kenndar aðferðir sem hjálpa ungmennum að efla sig og styrkja svo þau eigi auðveldara með að fylgja eigin hjarta og vera sátt við sig.

Bókin VELDU fylgir námskeiðinu en í henni er bæði töluverður fróðleikur og verkefni sem þátttakendur geta nýtt sér til daglegra nota út lífið.

Á námskeiðinu er m.a. fjallað um:

  • Mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar og styrkleika
  • Áhrif hugsana á líðan og hegðun
  • Jákvæða og neikvæða leiðtoga
  • Að setja sér markmið útfrá lífsgildum og draumum
  • Öndun, slökun og hugleiðslu

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur læri að nota einfaldar aðferðir til að öðlast styrk til að standa með sjálfum sér og nái þannig betur að njóta alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða. 

Skráning

Við bjóðum upp á að nýta frístundarstyrk fyrir námskeið Hugarfrelsis og tökum þess vegna á móti öllum skráningum fyrir námskeið á Íslandi í gegnum kerfi Sportabler. Skráningarhnappur færir þig inn á síðu kerfisins þar sem þú getur klárað skráningu. Fyrir námskeið haldin utan Íslands er skráning kláruð í gegnum vefverslun og mun skráningarhnappur færa þig á valið námskeið.

Næstu námskeið

Reykjavík

Hefst:

Auglýst síðar

Staðsetning:

Kennarar:
Unnur Arna Jónsdóttir

Kennarar námskeiðs