Sérsniðið námskeið fyrir náms- og starfsráðgjafa þar sem lögð er áhersla á aðferðir til að:
- Ýta undir tilfinningagreind
- Þjálfa upp styrkleika
- Efla sjálfsmynd
- Velja jákvæðni fremur en neikvæðni
- Draga úr streitu og kvíða
- Auka vináttufærni
Kennt er í gegnum leiki og fjölbreyttar æfingar sem henta hverju aldursstigi fyrir sig, hvort heldur í einstaklingsráðgjöf eða hópakennslu.
Líney Björg Sigurðardóttir náms- og starfsráðgjafi deilir því hvernig hún hefur nýtt efni Hugarfrelsis í sínu starfi og ávinning af því.
Námskeiðið samanstendur af tveimur skiptum. Á milli tímanna prófa þátttakendur aðferðirnar í sínum hópi. Á seinni degi námskeiðsinss fá þeir endurgjöf og handleiðslu.
Mikilvægt er að allir þeir sem vinna með börnum, unglingum og ungu fólki kunni einfaldar aðferðir til að hjálpa þeim að takast á við vanlíðan, samanburð, fullkomnunaráráttu og kvíða svo þau eigi auðveldara með að vera besta útgáfan af sér.
Námskeiðið Hugarfrelsi fyrir náms- og starfsráðgjafa færir þeim sem starfa með nemendum aukin verkfæri til að draga úr kvíða og streitu nemenda en ekki síður verkfæri til að efla sjálfstraust þeirra, jákvæðni og vellíðan.
Innifalið í námskeiðsgjaldinu: Spjöld og önnur námskeiðsgögn.