Hugarfrelsi logo

Námskeið

Vörur

Fyrirlestrar

skólar

Aðferðir

Kátir krakkar – helgarnámskeið með foreldri

Námskeið fyrir börn í 1.-3. bekk og foreldri
17.900 kr.

Um námskeiðið

Markmið námskeiðsins er að skapa gæðastund foreldris og barns. Áhersla er lögð á aðferðir til að efla sjálfsmyndina í gegnum leik, gleði og núvitund til að auka vellíðan.

Á námskeiðinu er foreldri með barni sínu og tekur virkan þátt í tímunum.

Á námskeiðinu læra börnin meðal annars að:

  • Velja jákvæðni umfram neikvæðni
  • Efla sjálfsmynd sína og sjálfstraust
  • Koma auga á styrkleika sína og nýta þá
  • Hafa trú á eigin getu og hvetja sig áfram
  • Takast á við tilfinningar sínar sem stundum eru krefjandi
  • Nota djúpa öndun daglega í allskonar aðstæðum
  • Auka einbeitingu og ímyndunarafl sitt
  • Gera jóga í gegnum leik
  • Slaka á og hugleiða

Námskeiðið byggir á aðferðafræði jákvæðrar sálfræði og núvitundar sem færir bæði þér og barni þínu verkfæri sem nýtast í daglega lífinu.

Innifalið í námskeiðsgjaldinu er bókin Vellíðan barna – handbók fyrir foreldra.

Námskeiðsgjaldið miðast við eitt barn og eitt foreldri. Ef skrá á systkini þarf að senda póst á hugarfrelsi@hugarfrelsi.is

Skráning

Við bjóðum upp á að nýta frístundarstyrk fyrir námskeið Hugarfrelsis og tökum þess vegna á móti öllum skráningum fyrir námskeið á Íslandi í gegnum kerfi Sportabler. Skráningarhnappur færir þig inn á síðu kerfisins þar sem þú getur klárað skráningu. Fyrir námskeið haldin utan Íslands er skráning kláruð í gegnum vefverslun og mun skráningarhnappur færa þig á valið námskeið.

Næstu námskeið

Reykjavík

Hefst: 18. janúar 2025

Námskeiðið er haldið helgina 18. og 19. janúar

Kl.13:00-15:00

Staðsetning:
Reykjavík

Kennarar:
Hrafnhildur og Unnur