Árangursríkt námskeið fyrir unglinga sem vilja læra einfaldar og öflugar aðferðir til að efla sjálfsmynd sína og læra að takast á við krefjandi tilfinningar m.a. kvíða.
Unglingar átta sig oft ekki á:
- Styrkleikum sínum og mikilvægi þeirra
- Hversu erfitt getur verið að standa undir eigin kröfum
- Að þeir geti valið viðhorf sín til allra verkefna á hverjum degi
- Að ónægur svefn og snjalltækjanotkun getur ýtt undir vanlíðan og kvíða
Á námskeiðinu er lögð áhersla á:
- Hugann, hugsanaskekkjur, val á viðhorfi
- Snjalltækjanotkun – áhrif, afleiðingar og úrræði
- Svefn og svefnvenjur – ráð til að bæta svefn og gæði hans
- Sjálfsmat, styrkleika og trú á eigin getu
- Að þekkja einkenni og birtingarmynd kvíða
- Gagnleg úrræði og aðferðir til að draga úr kvíða og öðrum krefjandi tilfinningum
- Markmiðasetningu til að vaxa sem einstaklingur og sigrast á hindrunum
- Mikilvægi vináttu og jákvæðra samskipta
- Djúpa öndun til að draga úr kvíða og öðrum krefjandi tilfinningum
- Slökun og hugleiðslu til að auka núvitund, einbeitingu og hugarró
Þátttakendur fylla út sjálfsmatskvarða í byrjun og lok námskeiðs. Sjálfsmatskvarðanum er ætlað að skoða ýmsa þætti sem tengjast geðheilbrigði barna og unglinga á aldrinum 7-18 ára. Niðurstöðurnar sýna að námskeiðið hefur jákvæð áhrif á vellíðan þátttakenda, eykur sjálfsmat og dregur úr kvíða.
Í upphafi námskeiðs fá foreldrar þátttakenda fræðslu til að geta stutt við barnið sitt meðan á námskeiðinu stendur.
Námskeiðið er 10 vikur og ætlað nemendum í 8.–10. bekk grunnskóla.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er bókin Veldu og önnur námskeiðsgögn.
Námskeiðið er byggt á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar, jákvæðrar sálfræði og núvitundar. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Dr. Paolu Cardenas, sálfræðing og fjölskyldufræðing.
Öflugt námskeið fyrir unglinga sem vilja efla sjálfsmynd sína og trú á eigin getu.